Edição de disco

Syngja Lög Eftir "Tólfta September"

Vilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms · 1970 · Vinil · LP

Ainda sem preço de referência. Entra na fila assim que alguém marcar Quero.

Ainda sem anúncio ativo desta edição de disco. Marque “Quero muito” e avise quem tem.

Ficha

Ano
1970
Artista
Vilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms
País
Islândia
Selo
SG-Hljómplötur
Catálogo
SG-027
Discogs
#4995337
Formato
Vinil · LP
Gêneros
Pop
Estilos
Vocal
Coleção
Discos
  1. A1Draumur Fangans
  2. A2Í Faðmi Þér
  3. A3Heimþrá
  4. A4Sumarleyfið
  5. A5Þú Ert Vagga Mín, Haf
  6. A6Bergmál Hins Liðna
  7. B1Halló
  8. B2Hér Sátum Við Bæði
  9. B3Frostrósir
  10. B4Blikandi Haf
  11. B5Litla Stúlkan Við Hliðið
  12. B6Litli Tónlistarmaðurinn
Þegar templarar fóru af stað með danslagakeppni í Góðtemplarahúsinu fyrir tœpum tuttugu árum hefur það sennilega verið gert í tvennum tilgangi; til að auka aðsóknina að dansleikjum í Gúttó og til að koma íslenzkum lögum á framfœri. En á þessum árum, var vegur íslenzkra danslaga ekki meiri en það, að það komu aðeins fram 1—2 íslenzk lög á ári á móti hinum mörgu hundruðum erlendra laga, sem voru flutt á skemmtistöðum og í útvarpi. Þetta tókst hjá templurum. Aðsóknin jókst að dansleikjum í Gúttó og fyrir tilstilli þeirra komu fram mörg lög, sem sígild hafa orðið í hópi íslenzkra dægurlaga. Freymóður Jóhannsson stóð fyrir danslagakeppni SKT þessi ár, sem hún stóð yfir. Fylgdist hann með öllu af lífi og sál. Mér er það minnisstætt, að hann mœtti á flestum œfingum hljómsveitarinnar í Gúttó, til að fylgjast með þvi að þessi valsinn vœri ekki of hœgur, eða hinn tangóinn of hraður. Það var á öðru, frekar en þriðja ári keppninnar, að þátttaka var einhverra hluta vegna minni, en búizt hafði verið við. Þá vantaði tvö eða þrjú lög svo að lögleg keppni gœti farið fram. Freymóður skauzt þá út í bœ, sagðist vita um lög, sem nota mœtti til uppfyllingar. Höfundur þessara laga var skráður „Tólfti september" og lögin, sem gripið var til á síðustu stundu náðu svo sannarlega eyrum fólksins. Þau voru gœdd þeim nauðsynlega einfaldleika, sem verður að vera fyrir hendi, svo að ljúf laglína eða fallegt ljóð verði á hvers manns vorum á svipstundu. Það kom í ljós þegar verðlaunum var úthlutað, að Freymóður varð að taka á móti verðlaunum „Tólfta september" því lögin voru eftir hann. Hann hafði einfaldlega tekið sér fœðingardag sinn sem höfundarnafn. Á þessum árum samdi Freymóður mikinn fjölda laga, mörg þeirra hlutu verðlaun og voru síðan sungin landshornanna á milli þegar þau voru flutt í úrvarpi. Freymóður Jóhannsson á mikinn heiður skilið fyrir allt það, sem hann hefur gert fyrir íslenzka dans- og dægurtónlist. Fyrst og fremst fyrir lög sín og ljóð og síðan fyrir brautryðjendastarf sitt í sambandi við danslagakeppni SKT og ekki hvað sízt fyrir að halda merki íslenzkrar dœgurlagatónlistar á lofti æ síðan. Ég er ekki í minnsta vafa um, að það er að all verulegu leyti þessu starfi hans að þakka, að síðasta hálfan annan áratuginn hafa Íslendingar tekið góð íslenzk lög og ljóð langt fram yfir það sem erlent er. Þessvegna er mér það sérstök ánægja, að fœra Freymóði Jóhannssyni þessa hljómplötu á 75 ára afmœlisdegi hans, tólfta september 1970. Á plötunni eru öll hans þekktustu lög ásamt þremur öðrum, sem ekki hafa áður komið á hljómplötu. Öll eru ljóðin eftir Freymóð, að undanskildu Þú ert vagga mín, haf sem er eftir Reinhardt Reinhardtsson. Flytjendur eru systkinin Vilhjálmur og Elly Vilhjálms, en útsetjari og hljómsveitarstjóri Jón Sigurðsson. Hefur þeim þremur ekki tekizt síður upp á þessari plötu, en hinni fyrri, sem þau unnu að saman fyrr á þessu ári.

Notas publicadas na Discogs, no idioma original

Data provided by Discogs. O trocaí não é afiliado à Discogs.

Perguntas frequentes

Quanto vale a edição de disco Syngja Lög Eftir "Tólfta September" do álbum Vilhjálmur Vilhjálmsson Og Elly Vilhjalms — Syngja Lög Eftir "Tólfta September"?

Ainda não há preço de referência para esta edição de disco na trocaí. Quando houver, ele aparece nesta página, com a data da leitura. É uma referência de mercado, não uma oferta.

Quais são as faixas da edição de disco Syngja Lög Eftir "Tólfta September"?

Syngja Lög Eftir "Tólfta September" tem 12 faixas: Draumur Fangans, Í Faðmi Þér, Heimþrá, Sumarleyfið, Þú Ert Vagga Mín, Haf e outras.

Onde encontro a edição de disco Syngja Lög Eftir "Tólfta September" para trocar ou comprar?

Na trocaí, com quem tem perto de você. Crie a conta grátis e marque "Quero".