Edição de disco

Undurfagra Ævintýr (Lög Oddgeirs Kristjánssonar)

Oddgeir Kristjánsson, Various · 1991 · Vinil × 2 · LP

Ainda sem preço de referência. Entra na fila assim que alguém marcar Quero.

Ainda sem anúncio ativo desta edição de disco. Marque “Quero muito” e avise quem tem.

Ficha

Ano
1991
Artista
Oddgeir Kristjánsson, Various
País
Islândia
Selo
Svava Guðjónsdóttir
Catálogo
OK 080-LP
Discogs
#25640704
Código de barras
5690713400317
Formato
Vinil × 2 · LP
Gêneros
Clássica, Folk, world e country
Coleção
Discos
  1. A1Vor Við Sæinn
  2. A2Gamla Gatan
  3. A3Ég Veit Þú Kemur
  4. A4Glóðir
  5. A5Ágústnótt
  6. A6Siglning
  7. A7Fyrir Austan Mána
  8. B1Heima
  9. B2Þar Sem Fyrrum
  10. B3Vorvísa
  11. B4Sólbrúnir Vangar
  12. B5Ágústnótt
Published By
Skífan
Heildarútgáfa á lögum Oddgeirs Kristjánssonar: Undurfagra ævintýr á tveim plötum. Lög Oddgeirs Kristjánssonar frá Vestmannaeyjum verða gefin út í heildarútgáfu á tveimur hljómplötum, diskum og tónböndum í nóvember í tilefni þess að tónskáldið hefði orðið 80 ára 16. nóvember nk. Lög Oddgeirs hafa mörg verið sívinsæl með þjóðinni í 60 ár og má þar nefna "Ég veit þú kemur", "Bjartar vonir" og "Blítt og létt", en á Oddgeirsútgáfunni eru lögin flutt af einsöngvurum, kórum, lúðrasveit, hljómsveit og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Vestmanneyingar standa að baki útgáfunni og velunnarar Oddgeirs, en fjármagns til útgáfunnar er aðallega aflað í Vestmannaeyjum með því að leita til einstaklinga, bæjarsjóðs og félaga og fyrirtækja. Alls verða 27 lög Oddgeirs í heildarútgáfunni, en útsetningar eru yfir 40 þar sem sum lögin eru bæði sungin og leikin af lúðrasveit og einnig í mismunandi útsetningum eftir því hvort kór flytur eða einsöngvari. Jón Sigurðsson bassaleikari hefur útsett 8 lög fyrir heildarútgáfuna og Ellert Karlsson hefur útsett syrpu lúðarsveitarlaga en úrval lúðrasveitarmanna úr Reykjavík og nágrenni leikur undir stjórn hans. Þá syngja einsöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Kristinn Sigmundsson, Bergþór Pálsson, Þorgeir Andrésson, Guðmundur Jónsson, Jóhann Sigurðsson og Dómkórinn, Fóstbræður og Karlakór Reykjavíkur syngja nýjar upptökur. Þá leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands Oddgeirssvítuna í útsetningu Magnúsar Ingimarssonar auk fleiri flytjenda. Heildarútgáfan skiptist í 5 þætti, lög í dægurlagaútsetningu, einsöngslög, kórlög, lúðrasveitarsyrpu og Oddgeirssvítuna. Heildarútgáfan á tónsmíðum Oddgeirs mun bera nafnið Undurfagra ævintýr, en textana við flest lög Oddgeirs, sem mörg hver eru landskunn þjóðhátíðarlög, gerðu Ási í Bæ, Árni úr Eyjum og Loftur Guðmundsson. - Grímur. Morgunblaðið 23. október 1991 --- Undurfagra ævintýr­ lög Oddgeirs Kristjánssonar UNDURFAGRA ævintýr, útgáfa á hljómplötum, diskum og tónböndum með lögum Oddgeirs Kristjánssonar, er komin út. Þar eru 26 laga Oddgeirs í um 40 útsetningum. Í fréttatilkynningu segir að mörg laga Oddgeirs Kristjánssonar hafi verið sívinsæl hjá þjóðinni síðan 1930, en sum þeirra sé verið að flytja í fyrsta sinn með þessari útgáfu sem tengd er 80 ára afmælisári Oddgeirs, sem lést aðeins 54 ára gamall. Til fjáröflunar fyrir útgáfuna er m.a. safnað hjá velunnurum laga Oddgeirs í Eyjum og á fastalandinu og með sölu hljómplötunnar sem Skífan dreifir. Einnig er platan boðin til sölu í hverju húsi í Vestmannaeyjum. Jón Sigurðsson tónlistarmaður hefur útsett 9 lög fyrir útgáfuna og Ellert Karlsson fyrir lúðrasveit. Sjö einsöngvarar syngja á plötunni, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson, Jóhann Sigurðarson, Guðmundur Jónsson, Kristinn Sigmundsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Þorgeir Andrésson. Þá syngja Dómkórinn, Karlakór Reykjavíkur og Fóstbræður og stórsveit lúðrasveita og Sinfóníuhljómsveit Íslands leika. Á kápu umslags er mynd sem Sverrir Haraldsson listmálari teiknaði á sínum tíma fyrir forsíðu Oddgeirs, Vor við sæinn. Oddgeir Kristjánsson. Morgunblaðið 7. desember 1991

Notas publicadas na Discogs, no idioma original

Data provided by Discogs. O trocaí não é afiliado à Discogs.

Perguntas frequentes

Quanto vale a edição de disco Undurfagra Ævintýr (Lög Oddgeirs Kristjánssonar) do álbum Oddgeir Kristjánsson, Various — Undurfagra Ævintýr (Lög Oddgeirs Kristjánssonar)?

Ainda não há preço de referência para esta edição de disco na trocaí. Quando houver, ele aparece nesta página, com a data da leitura. É uma referência de mercado, não uma oferta.

Quais são as faixas da edição de disco Undurfagra Ævintýr (Lög Oddgeirs Kristjánssonar)?

Undurfagra Ævintýr (Lög Oddgeirs Kristjánssonar) tem 39 faixas: Vor Við Sæinn, Gamla Gatan, Ég Veit Þú Kemur, Glóðir, Ágústnótt e outras.

Onde encontro a edição de disco Undurfagra Ævintýr (Lög Oddgeirs Kristjánssonar) para trocar ou comprar?

Na trocaí, com quem tem perto de você. Crie a conta grátis e marque "Quero".